Lýsing
Svört hettupeysa úr 100% bómull, með Píeta merkinu á ermum og Lagarfjótinu á bakinu. Peysan kemur í unisex stærðunum S – M – L.
Þetta er sérútgáfa í takmörkuðu upplagi í tilefni að sögulegu sundi Sigurgeirs Svanbergssonar niður Lagarfljótið, frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun sem er nærri 50 kílómetra sund í jökulköldu fljótinu.
Myndin myndin á bakinu sýnir bæði leiðina sem Sigurgeir hyggst synda og táknræn kaflaskil sem hann vill vekja athygli á. Fyrsti kaflinn er myrkrið sem er táknrænn fyrir þau sem líður illa, sá næsti heitir týra til marks um það þegar ljósið læðist inn í tilvistina, síðan er það bakslag sem fylgir oft ferðalaginu til bata, svo er það barátta og von – það er alltaf von. Að lokum er það ljósið sem hjálpar okkur að sjá hlutina á nýjan hátt.
Þið getið lesið meira um sundið hér.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast með undirbúningi og sundinu hér: Til hvers að sigla?







