Lýsing
Styrktartími í Hreyfingu til styrktar Píeta samtökunum sem verður haldinn fimmtudagskvöldið 18. desember 2025.
Lilja Ketils, þjálfari í Hreyfingu og jógakennari, leiðir blandaðan tíma með léttum styrktaræfingum, mjúku flæði og meðvitaðri öndun sem endar á leiddri slökun. Markmiðið er að skapa öruggt og hlýlegt rými þar sem þátttakendur mega mæta eins og þeir eru og læra að mæta eigin líðan af mildi.
Viðburðurinn fer fram í Hreyfingu fimmtudaginn 18. desember næstkomandi kl. 19:45-21:15 í Hreyfingu við Glæsibæ, Álfheimum 74.
Allur ágóði rennur óskertur til Píeta samtakanna og styður ókeypis þjónustu fyrir fólk í sjálfshættu og aðstandendur þeirra.
🎟️ Kauptu miða hér til að tryggja þér þitt pláss og styrkja Píeta.
Öll hjartanlega velkomin.



