Vetrarsólstöðugangan er innihaldsrík samverustund á dimmasta kvöldi ársins haldin í minningu þeirra sem látist hafa fyrir eigin hendi og hvatning til þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir um að gefast ekki upp heldur þiggja hjálp og velja lífið.
Sjá viðburð hér: https://fb.me/e/5TMP3D8S1
Hist er í húsnæði Kynnisferða við Klettagarða 12. Laugardaginn 21. desember. Húsið opnar kl. 19 og dagskrá hefst 19:30. Boðið er upp á tónlistaratriði og flutt verða stutt ávörp. Genginn er svo stuttur spölur að vitanum við Skarfaklett þar sem minningarstund verður haldin. Hægt verður að kaupa kerti til styrktar Píeta samtökunum og kveikja á þeim við vitann. Einnig skrifum við skilaboð um söknuð og ást á gula vegginn á vitanum og yfir jól og áramót munu kveðjurnar standa á veggnum undir blikkandi ljósi og minna hvern sem kemur á að ástin er eilíf.
Öll eru velkomin.
Ókeypis aðgangur.
Dagskrá:
19:00 Hús opnar
19:30 Bjarni Karlsson býður gesti velkomna
19:40 Ávarp
19:50 Söngsveitin Fílharmónía syngur
20:00 Gengið út að vita og haldin verður minningarstund