Vetrarsólstöðuganga Píeta er innihaldsrík samvera á dimmasta kvöldi ársins
21.12.2025
Mögnuð árviss stund þar sem syrgjendur sem misst hafa í sjálfsvígi mæla sér mót á dimmasta kvöldi ársins til þess að kveikja ljós, minnast, þakka og styrkja. Ljósið er glæta vonarinnar og eitt af slagoðum Píeta er Það er alltaf von!
Sjá viðburð: https://fb.me/e/cqFKd6PPf
Við þökkum ykkur kærlega fyrir að vera með okkur og þökkum Bjarna, Evu og tónlistarfólki kærlega fyrir þeirra framlag í innihaldsríka dagskrá:
19:00 Hús opnar og Vöffluvagninn mætir
19:30 Stutt ávörp, Bjarni Karlsson og Eva Skarpaas
19:40 Sveinn Arnar Sæmundsson og Ásta Marý Stefánsdóttir taka lagið Lítið ljós
19:45 Söngsveitin Fílharmónía syngur nokkur lög
20:00 Gengið út að vita, kveikt á kertum og minningarorð rituð á vitann.
Hittumst í húsnæði Kynnisferða, Klettagörðum 12, kl 19:00 sunnudaginn 21.12.
– kerti og varningur seldur á staðnum
– Vöffluvagninn selur veitingar
– pennar á staðnum til að skrifa minningarorð á vitann
Takk Pálína Sigurðardóttir fyrir að fanga þessar fallegu myndir



