Hjálparsíma Píeta opinn 24/7

Nýtt fjögurra stafa númer Píeta samtakanna 

Þann 1. september síðastliðinn virkjaði heilbrigðisráðherra nýtt fjögurra stafa símanúmer Píeta samtakanna, 1799, við opnunarhátíð Guls september í Háskólanum í Reykjavík. Númerið er auðvelt að muna og verður mikilvæg leið fyrir fólk sem þarf á stuðningi að halda þegar lífið gerist þungt og erfitt. 


Við opnunarhátíðina mátti sjá fjölmarga gula miða sem nemendur Háskólans í Reykjavík höfðu skrifað á falleg og uppbyggileg skilaboð: Þú ert frábær! Mundu að það er alltaf hjálp að fá. Eigðu góðan dag! Hlúðu að þér! Vertu góð(ur) við þig í dag! 

Þetta voru einföld orð, en hafa samt mikla þýðingu. Stundum þarf ekki nema eina setningu, eitt bros eða eitt símtal til að minna manneskju á að hún sé ekki ein. 


Um leið var áréttað mikilvægi skilaboða Guls september og Píeta: Það er alltaf von og það er hjálp að fá. 

Mannúðleg nálgun skiptir máli 


Númerið 1799 vísar til ársins 1799 og tengist þeirri breytingu sem þá varð á hugmyndum um meðferð fólks með geðrænan vanda. Philippe Pinel, sem var einn af frumkvöðlum í geðlækningum, lagði áherslu á mannúðlegri nálgun þar sem sjúklingar skyldu mæta virðingu, mannlegri reisn og umhyggju. 

Þessi hugmyndafræði á enn erindi í dag. Við megum aldrei gleyma manneskjunni á bak við vandann. Á bak við erfiðleikana er einstaklingur með tilfinningar, vonir, drauma og sögu. Manneskja sem þarf stundum fyrst og fremst á því að halda að einhver hlusti, sýni skilning og segi: Ég er hér með þér. 


Það er einmitt sú hugsun sem Píeta samtökin standa fyrir – að mæta fólki af hlýju, skilningi, virðingu og bjóða stuðning og meðferð þegar þörfin er mest. 


Andleg heilsa  


Í nútímasamfélagi, þar sem áreiti og kröfur eru miklar, skiptir andleg heilsa ekki síður máli en líkamleg heilsa. 

Við þurfum öll að hlúa að andlegri heilsu okkar, rétt eins og við hlúum að líkamanum. Það getur falist í því að gefa sér tíma til að hvílast, tala við einhvern sem þú treystir, setja sér mörk, leita sér stuðnings eða einfaldlega leyfa sér að viðurkenna að maður hafi ekki alltaf allt á hreinu. 


Við berum líka ábyrgð hvert á öðru 


Það ætti að vera eitt af helstu aðalsmerkjum okkar Íslendinga að sýna samferðafólki hlýju, kærleika og virðingu.  
Það er styrkur okkar sem þjóðar að við erum ekki öll eins. Hvert og eitt okkar á að fá að vera það sjálft, með sína sögu, áskoranir og drauma. Og þegar lífið verður erfitt eigum við ekki að þurfa að takast á við það ein. 

Við þurfum kannski að verða betri í að spyrja: Hvernig hefur þú það í alvöru? Og ekki síður að vera tilbúin að hlusta á svarið. Við vitum ekki alltaf hvað manneskjan við hliðina á okkur er að ganga í gegnum. Brosið sem við sjáum segir ekki alltaf alla söguna. Við getum öll lagt okkar af mörkum í okkar nærumhverfi.    

Ef þú sjálf eða sjálfur ert að glíma við erfiðleika, þá er mikilvægt að muna að það er ekkert veikleikamerki að leita sér hjálpar. Þvert á móti. Það er styrkur að segja frá, styrkur að biðja um hjálp og styrkur að leyfa öðrum að standa með sér. 


Píeta er til staðar. Síminn 1799 er til staðar.   


Við þurfum ekki alltaf að hafa svörin. Við þurfum ekki alltaf að vita hvað við eigum að segja. Stundum skiptir mestu máli að vera til staðar, hlusta og sýna að okkur sé ekki sama. Því það er alltaf von. Það er hjálp að fá. 

Í gulum september studdu margir við samtökin með sjálfboðavinnu og fjárframlögum. Það er mikils virði fyrir Píeta samtökin að finna slíkan velvilja og fyrir það erum við ákaflega þakklát.   


Ragnhildur Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Píeta samtakanna.

Deila
Deila