Hringdu
Hringdu
Hlaupið fyrir Píeta verður haldið laugardaginn 11. apríl.
Ókeypis að taka þátt en ef þú vilt styrkja Píeta þá má kaupa miða hér:
https://pieta.is/product/3-500-kr-styrkur/
Viðburðurinn er óháður staðsetningu en við munum hittast á fjórum stöðum á landinu.
💛 Vífilstaðavatn í Garðabæ frá kl 9 til 13
💛 Íþróttamiðstöðin á Hólmavík frá kl 9 til 13
💛 Við Kirkjuna á Dalvík frá kl 11
💛 Söluskálinn Loppa á Fáskrúðsfirði frá kl 9 til 13
Viðburðurinn er þannig upp byggður að um er að ræða samveru sem felur í sér vitundarvakningu um Píeta Samtökin. Þetta er ekki keppni, þetta er bara spruning um að fara út og mæta sjálfum sér. Það er enginn tímatökubúnaður – þannig við erum bara að koma saman, njóta og sýna samstöðu.
Hver og einn hleypur eða gengur á sinn hátt á sínum hraða.
Lesa nánar um viðburð hér: https://fb.me/e/6unsi7unO
Öll hjartanlega velkomin.