Hjartans þakkir fyrir að hlaupa fyrir Píeta
Á dögunum tókum við klökk á móti þeim risa styrk sem á annaðhundrað hlauparar söfnuðu fyrir Píeta samtökin í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2026
16.025.412 krónur samanlagt!! Hvílíkt afrek
Þetta er algjörlega meiriháttar framlag hjá öllum þessum hlaupurum og styrktaraðilum sem lögðu hönd á plóg. Þetta er lang stærsta söfnun ársins hjá Píeta og gerir okkur kleift að halda úti öflugri og gjaldfrjálsri þjónustu fyrir viðkvæman hóp.
Vitundarvakningin sem fylgir þessum viðburði er ekki síðra afrek, þar sem hver og einn hlaupari vekur allt sitt nærsamfélag til vitundar um að það er alltaf von og að það er hjálp að fá

Gott dæmi um það er framlagið hans Eiðs sem safnaði mest af öllum einstaklingum í Maraþoninu Hann virkjaði fyrirtæki og einstaklinga og vakti allt samfélagið til vitundar með því að deila reynslu sinni, styrk og von í gegnum ljósvakamiðlana.
Takk, takk, takk öflugu ljósbera Píeta!