Hjálparsíma Píeta opinn 24/7

Útgáfa og sýningaropnun – Fegurð í Firði

Bókin Fegurð í Firði er vönduð myndabók með prósum eftir Gyrði Elíasson og myndum eftir Hallgrím Tómas Ragnarsson. Hún er gefin út laugardaginn 4. júlí. Samhliða útgáfu bókarinnar verður opnuð sýning á verkum úr bókinni í Gallerí Kambi í Holtum í Rangárþingi Ytra þar sem aðilar frá Píeta samtökunum mæta og taka táknrænt á móti þessari fallegu gjöf frá þeim Hallgrími og Gyrði. 

Andvirði af sölu bókarinnar og verkanna rennur óskipt til Píeta samtakanna en þau sinna meðferðar- og forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Þessi veglega bók verður til sölu á vefsíðu Píeta samtakanna auk þess að vera til sölu á sýningunni í sumar í Gallerí Kambi. 

Hér má kaupa bókina: https://pieta.is/product/fegurd-i-firdi-stk-20-000-kr/
 
👉 Sýningin Fegurð í Firði verður opin á laugardögum frá 4. júlí og fram til 15. ágúst frá kl. 13 – 17, í þessu skemmtilega Galleríi. 

Deila
Deila