Lýsing
Bókin Fegurð í Firði er vönduð myndabók með prósum eftir Gyrði Elíasson og myndum eftir Hallgrím Tómas Ragnarsson. Mikið var vandað til við útgáfu þessarar bókar, þetta er eigulegt verk til gjafar eða einkaeignar. Allur kostnaður af útgáfu og vinnu við bókina er útlagður af höfundum svo hver einasta króna af sölu bókanna rennur til Píeta samtakanna.
Sýning á myndum í Gallerí Kambi:
34 myndlistarverk úr bókinni hafa verið prentuð og eru einnig til sölu til styrktar Píeta. Þau eru prentuð í mattri áferð hjá Bay Photo Lab í Kaliforníu á álplötur og innrömmuð í fljótandi ramma. Verkin eru öll ferningslaga, ýmist 50 eða 75 cm og kosta frá 100 – 200 þúsund krónur. Verkin verða til sýnis í Gallerí Kambi í Holtum á laugardögum frá 4. júlí og fram til 15. ágúst frá kl. 13 – 17. Allur kostnaður af prentun og vinnu við myndirnar er útlagður af höfundum svo hver einasta króna af sölu þeirra rennur til Píeta samtakanna.




