Hringdu
Hringdu
Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi er að undirbúa sig fyrir það sem gæti orðið sögulegt sund þegar hann hyggst synda alla leið niður Lagarfljót þegar veður leyfir um miðjan júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek en þess má geta að skyggnið í leirlitu Lagarfljótinu er aðeins um 2 cm, svo það eitt og sér er ástæða til að undirbúa sig vel. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur hún verið að kortleggja fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun sem eru nærri 50 kílómetrar.
Við hlökkum til að fylgjast með Sigurgeiri, áætlað er að sundið muni taka um það bil 24 klst. Teymið hans mun sýna frá sundinu bæði á samfélagsmiðlum Píeta og á miðli Sigurgeirs: Til hvers að sigla?

Myndin hér að ofan sýnir leiðina sem Sigurgeir hyggst synda og táknræn kaflaskil sem hann vill vekja athygli á. Fyrsti kaflinn er myrkrið sem er táknrænn fyrir þau sem líður illa, sá næsti heitir týra til marks um það þegar ljósið læðist inní tilvistina, síðan er það bakslag sem fylgir oft ferðalaginu til bata, svo er það barátta og von – það er alltaf von. Að lokum er það ljósið sem hjálpar okkur að sjá hlutina á nýjan hátt. Sigurgeir ætlar að koma á land og taka við kyndli og tendra með honum bál til að tákna ljósið, þar ætla Austfirðingar að taka á móti honum og standa saman fyrir von og sýna samstöðu með þeim sem eru að ganga í gegnum dimma tíma – því það er alltaf von og það er hjálp að fá.
Sigurgeir Svanbergsson er einn af þeim ljósberum sem hafa verið ómetanlegir fyrir Píeta samtökin á síðustu árum. Hann synti árið 2024 í nóvemberfrosti frá Reyðarfirði til Eskifjarðar með eiginkonu sína, Sóleyju, í eftirdragi á táknrænan hátt. Það má með sanni segja að Sigurgeir hafi hrifið allt Austurland með sér í þessu sundi en Austfirðingar fjölmenntu og tóku á móti kappanum í fjörunni á Eskifiriði í lok sunds. Í kjölfarið var opnað Píetaskjól á Reyðarfirði í febrúar 2025.
Í júlí á síðasta ári synti hann svo Ermasundið til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna og hjálpa okkur að safna fyrir nýju heimili og koma samtökunum í öruggt skjól. Þetta var magnað sund sem Sigurgeir var vel undirbúinn fyrir en á lokametrum sundsins dró hins vegar til tíðinda þegar hafstraumar fóru að draga Sigurgeir frá fylgdarbáti og fylgdarliði svo hann átti það á hættu að týnast í myrkrinu. Sigurgeir fékk þá táknræna hjálparhönd á ögurstundu og komst um borð í öruggt skjól. Líkt og von okkar er að Píeta samtökin geri fyrir öll sem til okkar leita.