Hjálparliði hjá Píeta samtökunum með þóknun 💛
👉Langar þig að hafa jákvæð áhrif á líf annarra?
Við leitum að hjálparliðum til að taka þátt í mikilvægu starfi sem snýr að sjálfsvígsforvörnum og stuðningi við einstaklinga með sjálfsvígsvanda og aðstandendur þeirra. Þetta er einstakt tækifæri til að láta gott af þér leiða, þróa samskiptahæfileika þína og starfa með faglegu teymi.
🟡Um starfið:
Hjálparliðar Píetasímans sinna hlutverki ráðgjafa á hjálparsímanum og veita fólki stuðning og ráðgjöf á þeirra erfiðustu stundum. Starfið fer fram á eigin heimili og hjálparliðar hafa aðgang að yfirmanni sem er alltaf á bakvakt og getur veitt ráðgjöf í krefjandi aðstæðum.
🟡Starfið felur í sér:
1. Að taka á móti símtölum frá einstaklingum og aðstandendum í vanda.
2. Að hlusta af yfirvegun og styðja við einstaklinga á erfiðum tíma.
3. Að miðla til skjólstæðinga upplýsingum um úrræði og koma málum í viðeigandi farveg
4. Að vinna í samræmi við siðareglur og verklag samtakanna.
🟡Við bjóðum:
1. Þjálfun og stuðning fyrir hjálparliða áður en fyrsta vakt hefst.
2. Handleiðslu frá fagaðila og aðgang að bakvakt í krefjandi aðstæðum.
3. Sveigjanlegt starf sem hægt er að sinna að heiman.
4. Þóknun fyrir unnar vaktir.
5. Tækifæri til að þróa samskiptahæfni og öðlast dýrmæta reynslu í mannúðarstarfi.
🟡Við leitum að einstaklingum sem hafa:
1. Hæfni til að hlusta af yfirvegun, veita stuðning og sýna virðingu án dóma.
2. Sjálfstæði og sveigjanleika í krefjandi verkefnum.
3. Vilja til að hjálpa öðrum í viðkvæmum aðstæðum.
4. Hæfni til að halda ró í krefjandi aðstæðum.
5. 20 ára eða eldri með getu til að tjá sig skýrt á íslensku. Þá er kostur að geta tjáð sig á ensku.
6. Ýmis konar reynsla sem nýtist í stuðningshlutverki er kostur en ekki nauðsyn.
👉Hvernig sækir þú um?
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessu mikilvæga starfi, sendu okkur eftirfarandi á pieta@pieta.is:
1. Stutta kynningu á sjálfri/sjálfum/sjálfu þér og af hverju þú hefur áhuga á hlutverkinu.
2. Upplýsingar um reynslu sem gæti nýst í starfinu.
3. Símanúmer og netfang svo við getum haft samband.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Fyrir frekari upplýsingar, hafðu samband við gisli@pieta.is eða í síma 552-2218.
