Hringdu
Hringdu
Aðalfundur Píeta samtakanna verður haldinn í Hannesarholti, Grundarstíg 10, þriðjudaginn 26. maí 2026 klukkan 17.
Hefðbundin aðalfundastörf.
Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins má sjá hér að neðan.
Hér má sjá núverandi samþykktir Píeta samtakanna: https://pieta.is/um-pieta/samthykktir/
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn Píeta samtakanna.
_________________________
Stjórn Píeta samtakanna leggur til eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins.
a.
Fjórða grein breytist þannig:
4.gr. Heimili og varnarþing
Heimili Píeta samtakanna og varnarþing, er að Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
b.
Fyrsta setning 5. gr. orðist þannig:
Aðalfund skal halda fyrir 1. júní ár hvert og skal boða til hans með minnst þriggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.
c.
Heiti 11. gr. breytist og við hana bætast nýjar fyrsta og önnur málsgrein.
11. gr. Breytingar á samþykktum og slit félagsins.
Tillögur um breytingar á samþykktum þessum skulu berast stjórn samtakanna eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Til þess að breyting nái fram að ganga verður hún að vera samþykkt með 2/3 hluta greiddra atkvæða á lögmætum aðalfundi. Breytingar, sem samþykktar eru á aðalfundi, öðlast þegar gildi nema annað sé tekið fram.