Nýr framkvæmdastjóri Píeta

👉Ragnhildur Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Píeta samtakanna, við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins 💛

Ragnhildur hefur menntun á sviði stjórnunar og á farsælan stjórnunarferil að baki, síðustu árin sem skrifstofu- og mannauðsstjóri Biskupsstofu. Stjórnunarstíll Ragnhildar hefur einkennst af hugmyndafræðinni um þjónandi forystu og hefur hún mikla þekkingu á félagsstarfi og grasrótarhreyfingum. Ragnhildur starfaði einnig um tíma sem skólastjóri Barnaskólans í Reykjavík og djákni innan Þjóðkirkjunnar.

👉Ragnhildur segist aðspurð hlakka til að taka við framkvæmdastjórastöðu Píeta samtakanna og vinna með því góða fólki sem þar starfar ásamt öllu því fólki sem leggur hönd á plóg í sjálfboðavinnu fyrir samtökin.

,,Píeta samtökin gegna mjög mikilvægu hlutverki í forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sinna viðtölum og stuðningi við fólk um land allt. Samtökin eru tíu ára á næsta ári, þau hafa skapað sér velvild og jákvæðni í þjóðfélaginu sem gott er að byggja á til framtíðar. Það skiptir miklu máli að við stöndum vel að forvörnum hvað varðar sjálfsvíg og að þjóðfélagið allt taki höndum saman um að hlúa að ungu fólki og taka utan um það‘‘

🟡 Við hlökkum til samstarfsins 💛

Deila
Deila