Reykjavíkurmaraþon 2025

Hlauptu til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu 2025

Þú getur hlaupið til góðs fyrir Píeta samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu 23. ágúst 2025 með því að smella hér. Einnig getur þú styrkt með því að heita á hlaupara Píeta hér.

Frá stofnun Píeta samtakanna hafa áheit í Reykjavíkurmaraþoninu verið ein af undirstöðum gjaldfrjálsrar þjónustu fyrir þá sem eru með sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða og aðstandendur þeirra.

Með því að taka þátt og safna áheitum þá hjálpar þú okkur að hjálpa öðrum 💛

👉Við treystum á þig, þú getur skráð þig á www.hlaupastyrkur.is eða fundið þinn hlaupara og hjálpaðu honum að safna fyrir Píeta samtökin.

Sjáðu alla hlauparana okkar með því að smella hér.

Upphæðirnar smáar sem stórar skipta Píeta samtökin miklu máli enda er það fyrir tilstilli almennings sem samtökin geta hjálpað svo mörgum og haldið úti gjaldfrálsri meðferð og fræðslu.

Deila
Deila