Hringdu
Píeta samtökin reka hjálparsíma allan sólarhringinn, alla daga ársins. Símanúmerið er 552-2218. Ráðgjafar veita öllum þeim sem hringja ráðgjöf, bóka í viðtal eða vísa í önnur úrræði, sé þess þörf.
Píeta veitir meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða og stuðning við aðstandendur þeirra og aðstandendur sem hafa misst. Þjónustan er fyrir 18 ára og eldri og er gjaldfrjáls.
Meðferðaraðilar Píeta eru allir með viðurkennt starfsleyfi landlæknis á sviði geðheilbrigðis; sálfræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar og læknir.
Við tökum öllum með opnum örmum sem hafa samband við okkur.
Meðferð okkar byggist á Díalektískri atferlismeðferð (DAM) sem er gagnreynt meðferðarúrræði. Meðferð er mótuð af samkennd og virðingu fyrir hverjum þeim sem til okkar leitar. Viðurkenning er hornsteinn meðferðar. Lögð er áhersla á að kenna hjálpleg bjargráð og vinna í átt að lausnum. Miðað er að því að leysa yfirstandandi krísu og glæða von.
- meta sjálfsvígshættu
- draga úr tilfinningalegum sársáuka
- aðstoða við að ná betra tilfinningalegu jafnvægi
- aðstoða þig við að finna annað úrræði ef þörf þykir
- ert með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða
- ert aðstandandi einhvers sem er í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða
- hefur misst einhvern náinn í sjálfsvígi
- ert 18 ára eða eldri
- Fólk sem er með sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaða eða er í sjálfsvígshættu
Samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum á Íslandi og vilja efla þekkingu og skilning á málefninu.
- Sinna fræðslu og ráðgjöf fyrir almenning fyrirtæki og stofnanir
- Eru með kynningar og fræðslu í framhaldsskólum
- Taka virkan þátt í þjóðfélagsumræðum um málefnið