Styrktaraðilar Píeta
Styrktaraðilar Píeta
Píeta eru í eigu þjóðarinnar og eru að stæðstum hluta rekin af framlögum frá einstaklingum. Mánaðarlegir styrktaraðilar okkar eru okkar helsti bakhjarl. Fyrir það erum við óendanlega þakklát.
Fjölmargir aðrir leggja samtökunum lið.
Alma Leigufélag lánar samtökunum húsnæðið að Baldursgötu 7. Án þeirra værum við ekki með aðstöðu fyrir starfið okkar.
Oddfellow, Kiwanis, Lions og Rótarý hafa reynst samtökunum sannkallaður haukur í horni.
Samfélagsstyrkir s.s frá Lýðheilsusjóði, Reykjavíkurborg ofl hafa veið ómetanlegir. Félagsmálaráðuneytið hefur komið ötullega að starfinu og Heilbrigðisráðuneitið.
Engir fastir samningar eru við ríkið.
Fjölmörg fyrirtæki hafa einnig stutt við bakið á okkur með fjárframlögum eða öðrum gjöfum.
Skólahópar og aðrir hópar hafa staðið fyrir fjáröflunum fyrir okkur, hlauparar farið í áheitahlaup fyrir okkur, ToyRun rúntað um landið árlega og margir fleiri.
Einlægar þakkir til allra. Án ykkar værum við ekki til.