Hringdu
Hringdu
Píeta samtökin bjóða upp á stuðningshóp fyrir aðstandendur sem misst hafa í sjálfsvígi. Stuðningshópurinn hittist annan mánudag í mánuði í kapellu Akureyrarkirkju kl: 20:00.
Sjónarhóll:
Mæður, dætur, systur, vinkonur og makar er stuðningshópur fyrir konur sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi.
Þetta eru innihaldsríkir og styrkjandi fundir undir handleiðslu Eddu Björgvinsdóttur og Auðar Hallgrímsdóttur. Þær hafa báðar lokið sálgæslunámi og hafa sjálfar misst í sjálfsvígi.
Fundurinn er haldinn síðasta þriðjudag í mánuði frá kl. 17-18:30 á Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík í sal á jarðhæð, til vinstri.
26. maí
Stuðningshópur Píeta fyrir kvenkyns aðstandendur fólks í sjálfsvígshættu er stuðningshópur fyrir mæður, dætur, systur og maka fólks í sjálfsvígshættu, fólks sem hefur gert tilraun til sjálfsvígs, er með sjálfsvígshugsanir eða er talið líklegt til að gera tilraun.
Hópurinn hittist þriðja miðvikudag í mánuði kl.17-18:30 á Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík í sal á jarðhæð, til vinstri.
Vídalínskirkja: